Er Tumi Steinn á heimleið?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Leikstjórnandinn, Tumi Steinn Rúnarsson leikmaður Alpla Hard í Austurríki gæti verið á heimleið en þetta herma heimildir Handkastsins.

Tumi Steinn sem er uppalinn hjá Val lék einnig um tíma með Aftureldingu gekk í raðir Coburg í þýsku B-deildinni í janúar 2022 þegar þýska félagið keypti hann frá Val. Tumi lék eitt og hálft tímabil með Coburg áður en hann gekk í raðir Alpla Hard í Austurríki.

Hjá Alpla Hard leikur Tumi Steinn undirstjórn Hannesar Jóns Jónssonar sem hættir með liðið eftir tímabilið. Auk þess leikur Tryggvi Garðar Jónsson með Alpla Hard.

Samkvæmt heimildum Handkastsins gæti Tumi Steinn verið á heimleið í sumar en hann yfirgefur Alpla Hard í sumar. Hann hefur verið orðaður við KA en KA hafa verið duglegir að fá til sín leikmenn heim úr atvinnumennsku að undanförnu en Bjarni Ófeigur Valdimarsson er á sínu öðru tímabili með KA og þá fékk félagið Dag Gautason og Ágúst Elí Björgvinsson um áramótin.

Ef til vill eru fleiri félög hér á landi sem myndu vilja nýta sér krafta Tuma Steins og verður áhugavert að sjá hvort Tumi Steinn endi hér heima og leiki í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top