Það voru heldur betur óvænt tíðindi að berast úr Garðabænum en Hrannar Guðmundsson er hættur sem þjálfari liðsins einungis þremur dögum áður en umspilið hefst um laust sæti í Olís-deildinni fyrir næstu leiktíð. Hrannar lætur af störfum og munu þeir Sverrir Eyjólfsson og Tandri Már Konráðsson stýra liðinu í þeim leikjum sem eftir eru. Stjarnan mætir Fjölni í undanúrslitum umspilsins um laust sæti í Olís-deildinni sem hefst á föstudaginn. ,,Hrannar Guðmundsson hefur lagt mikið af mörkum til liðsins og viljum við þakka honum kærlega fyrir hans framlag og starf undanfarin ár. Jafnframt óskum við honum velfarnaðar í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur. Við hlökkum til að sjá liðið taka næstu skref," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni. Áður hafði verið tilkynnt að þeir Sverrir Eyjólfsson og Tandri Már Konráðsson myndu taka við liðinu af Hrannari eftir tímabilið en Stjarnan endaði í 11.sæti Olís-deildarinnar og er því á leið í umspil til að tryggja sæti sitt í deildinni. Hrannar tók við liði Stjörnunnar í byrjun tímabilsins 2023/2024 og var því á sínu þriðja ári með liðið. Arnari Daða Arnarssyni var sagt upp störfum sem aðstoðarþjálfari liðsins um áramótin en liðið tapaði öllum leikjum sínum í Olís-deildinni eftir áramót. Alls tapaði liðið ellefu leikjum í röð eða öllum leikjunum í seinni umferð Olís-deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.