Samkvæmt upplýsingum Handballbase hefur ungverski landsliðsmarkvörðurinn Kristof Palasics samið við Pick Szeged. Samkvæmt þeim upplýsingum mun markvörðurinn snúa aftur til heimalands síns sumarið 2027. Ungverska stórveldið hyggst gera miklar breytingar á markmannsstöðunni og búist er við að markmannstvíeykið frá 2027 verði skipað Nikola Portner og Palasics. Sagt er frá því að Palasics hafi einnig verið í viðræðum við erkifjendur Pick Szeged í Veszprém sem og möguleikann á að framlengja dvöl sína hjá Melsungen, en ákvað að lokum að velja Szeged sem næsta skref í ferlinum. Miklar breytingar eru í vændum hjá félaginu en Janus Daði Smárason yfirgefur félagið í sumar og gengur í raðir Barcelona. Auk hans munu Garciandia, Kalarash og Nikolic yfirgefa félagið. Þá er orðrómur uppi um það Roland MIkler og Bodo yfirgefi félagið einnig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.