Ásthildur Bertha Bjarkadóttir leikmaður kvennaliðs ÍR í Olís-deildinni skýtur föstum skotum á HSÍ á Tiktok reikningi sínum þar sem hún sýnir mismun HSÍ á því hvernig sambandið auglýsti leik kvenna landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins miðað við hvernig HSÍ auglýsti síðan vináttulandsleiki karla landsliðsins gegn Svíþjóð á dögunum. Myndbandið hefur vakið mikla athygli og rúmlega 1300 notendur TikTok hafa gefið myndbandinu viðbrögð með því að smella á hjarta táknið við myndbandið. Við myndbandið sem Ásthildur Bertha birti á TikTok síðu sinni skrifar hún: ,,Undirbúningur og auglýsingar fyrir VINÁTTULANDSLEIKI hjá A-landsliði karla vs undirbúningur og auglýsingar fyrir umspilsleiki að komast inn á STÓRMÓT hjá A-landsliði kvenna" Landsliðskonan, Katrín Tinna Jensdóttir og samherji Ásthildar hjá ÍR var fyrst til að skrifa athugasemd við myndbandið þar sem hún lét þrjú tjákn (e. emoji) duga þar sem tjáknið heldur fyrir annað augað. Fleiri leikmenn Olís-deildar kvenna hafa skrifað við myndbandið, meðal annars Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir leikmaður Fram sem segir að þetta sé ekki í lagi. Hildur Öder Einarsdóttir markvörður ÍR skrifar einnig undir myndbandið: ,,Svo ekki sé talað um muninn hvernig þeim tilkynna leikmanna hópana" og bætir við trúða tjákni. Kovan Zeravan sem lék eitt sinn með Val og Víking virðist vera allt annað en sáttur og merkir HSÍ við sína færslu og segir: ,,Gerið betur" og bætir við þremur upphrópunarmerkjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.