Þjálfarabreytingar á Selfossi – Carlos yfirgefur Ísland
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Samkvæmt heimildum Handkastsins verður Spánverjinn Carlos Martin Santos ekki áfram við stjórnvölinn hjá Selfossi sem þjálfari Olís-deildar karla liðs félagsins. Samkvæmt heimildum Handkastsins er Carlos Martin Santos á leið til Svíþjóðar og tekur þar við liði Aranås.

Samkvæmt heimildum Handkastsins nýtti Carlos sér uppsagnarákvæði í samningi sínum en hann var að klára sitt annað tímabil með Selfoss liðið. Carlos tók við liðinu árið 2023 eftir að hafa gert góða hluti með Hörð á Ísafirði.

Undir hans stjórn tryggði Selfoss sér sæti í Olís-deildinni á síðustu leiktíð eftir sigur á Gróttu í umspilinu og hélt liðið sæti sínu í deildinni á nýafstöðnu tímabili en liðið endaði í 10.sæti deildarinnar. Liðið var lengi vel í baráttu um sæti í úrslitakeppninni.

Sænska liðið Aranås er í 5.sæti sænsku B-deildarinnar en liðið kemst ekki í umspil um laust sæti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Það er sænski miðillinn Aftonbladet sem greinir frá viðræðum Carlos við sænska félagið.

Spánverjinn var valinn þjálfari Olís-deildarinnar að mati Handkastsins en lið tímabilsins var opinberað í síðustu viku. Það verður áhugavert að sjá hver tekur við liði Selfoss af Carlosi.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top