Valur taldir líklegastir til að verða Íslandsmeistarar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Úrslitakeppnin í Olís-deild karla hefst á morgun þegar 8-liða úrslitin fara af stað með tveimur leikjum. Veðmálasíðan Coolbet hafa sett upp veðmál þar sem hægt er að veðja á hvaða lið verður Íslandsmeistari í vor.

Þar eru deildarmeistarar Vals með lægsta stuðulinn eða 3 í stuðul. Bikarmeistarar Hauka koma næstir með 3,5 í stuðul og næst eru það FH með 5 í stuðul.

HK sem koma inn í úrslitakeppnina sem 8. besta liðið eru taldir ólíklegastir til að verða Íslandsmeistarar á stuðlinum 100. Íslandsmeistarar Fram frá því á síðustu leiktíð eru á stuðlinum 12.

Coolbet býður upp á töluvert magn af veðmálum nú í aðdraganda úrslitakeppninnar og greinilegt að áhuginn fyrir úrslitakeppninni hefur sjaldan verið meiri hjá starfsmönnum Coolbet.

Leikir í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins:

Miðvikudagur:
18:00 ÍBV - KA
19:30 Valur - HK

Fimmtudagur:
18:00 Haukar - Afturelding
19:30 FH - Fram

Hitað var upp fyrir úrslitakeppnina í nýjasta þætti Handkastsins sem hægt er að nálgast á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top