Viggó segir erfitt að tjá sig um einhverja orðróma
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Handkastið ásamt erlendum miðlum greindu frá því í byrjun mars að landsliðsmaðurinn, Viggó Kristjánsson væri í viðræðum við þýska stórliðið Flensburg um að ganga til liðs við félagið þegar samningi hans við HC Erlangen lýkur, sumarið 2027.

Handkastið spurði Viggó út í þennan orðróm eftir landsleik Íslands gegn Svíþjóð á dögunum.

,,Það er erfitt fyrir mig að vera tjá mig eitthvað um einhverja orðróma. Ég er samningsbundinn Erlangen til 2027 og hvað gerist eftir það verður að koma í ljós," sagði Viggó.

Handkastið hefur undir höndum mynd af Viggó Kristjánssyni stöddum í Flensburg á dögunum. Hefur Flensburg haft samband við þig eða þinn umboðsmann?

,,Ég kýs að tjá mig ekki um það."

En er það þitt markmið að næsta skref á ferlinum verði að spila með liði í toppbaráttu í þýsku úrvalsdeildinni?

,,Það hefur alltaf verið mitt markmið og ég stefni á að spila á sem hæsta leveli. Að sjálfsögðu væri Flensburg eitt af þeim liðum sem kæmi til greina. Þetta er eitt besta lið í heimi og að sjálfsögðu útiloka ég ekki félag eins og Flensburg."

Á sama tíma og Viggó var orðaður við Flensburg sumarið 2027 spratt upp annar orðrómur um að Flensburg væri að gera sig líklega til að kaupa Viggó og hafi boðið 200.000 evrur í hann en talað var um að Viggó væri með klásúlu í samningi sínum sem hljóðaði upp á 250.000 evrur.

,,Ég er með samning til 2027 og það er engin klásúla," ítrekaði Viggó að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top