Úrslitakeppnin í Olís-deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum þegar ÍBV fær KA í heimsókn klukkan 18:00 og klukkan 19:30 fá deildarmeistarar Vals lið HK í heimsókn sem að mörgum er talið vera það einvígi sem verður ójafnast í 8-liða úrslitunum. Það skal engan undra, 18 stigum munaði á liðunum í deildinni og Valur vann báða leiki liðanna í Olís-deildinni í vetur sannfærandi. Þann fyrri í Kórnum 33-24 og sá síðari í byrjun mánaðarins með sjö mörkum 33-26 en staðan var 15-14 Val í vil í hálfleik. Þegar rýnt er í söguna þá hefur Valur haft ótrúlega yfirburði gegn HK síðustu ár en HK vann Val síðast 17. nóvember árið 2012 eða fyrir 4876 dögum síðan. Þá var leikmaður á borð við Gunnar Róbertsson sem er lykilmaður í liði Vals í dag, á fjórða aldursári. Valur hefur unnið HK sextán leiki í röð eða eftir sigur HK 17. nóvember árið 2012 gerðu liðin jafntefli sama tímabil en síðan þá hafa liðin mæst sextán sinnum og Valur unnið í öll skiptin. Hitað var upp fyrir úrslitakeppnina í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.