Jakob Martin Ásgeirsson hefur framlengt samningi sínum við FH til næstu þriggja ára. Þetta tilkynnti FH í morgunsárið. Í tilkynningunni segir að Jakob eigi 307 leiki fyrir FH og þar af 32 Evrópuleiki en það er einungis Guðjón Árnason sem eigi fleiri Evrópuleiki í FH treyjunni og því gæti met hans verið í hættu á næstu árum. Jakob Martin hefur verið gríðarlega mikilvægur FH liðinu á báðum endum vallarins og ljóst að hann mun vera það áfram til 2029 í það minnsta.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.