Það var mikið um að vera á Norðurlöndunum í kvöld en lokaumferðin í sænsku deildinni fór fram þar sem mikið var undir hjá ákveðnum íslendingaliðum á meðan Drammen átti leik í Noregi og það var íslendingaslagur í Danmörku. Í Svíþjóð var mikið undir hjá Kristianstad en þeir vissu að með sigri gegn Skövde á útivelli myndi liðið tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Það tókst en eftir frekar jafnan fyrri hálfleik og upphaf síðari hálfleiks náðu gestirnir að slíta sig frá Skövde og vinna góðan sigur, 30-34 og því deildarmeistaratitillinn í höfn! Einar Bragi Aðalsteinsson fékk að líta rautt spjald í leiknum þegar tólf mínútur voru eftir en hann hafði skorað tvö mörk úr sex skotum og gefið eina stoðsendingu þegar kom að rauða spjaldinu. Annað lið sem átti mikilvægan leik í kvöld var Karlskrona en þeir áttu möguleika á sæti í úrslitakeppnina með því að vinna GUIF á útivelli og ef Önnereds eða Ystad myndu misstíga sig á sama tíma. Karlskrona gerði sitt og vann góðan sigur, 27-31 þar sem Arnór Viðarsson skoraði þrjú mörk úr þremur skotum og gaf tvær stoðsendingar að auki. Þá er komið að Önnereds en þeir mættu Birgi Stein Jónssyni og félögum í Sävehof á heimavelli, þeim mistókst að gera það sem þurfti því gestirnir frá Gautaborg reyndust sterkari aðilinn í kvöld og gerðu Karlskrona mönnum greiða með því að sigra Önnereds, 24-32. Birgir Steinn skoraði þrjú mörk úr fimm skotum en öll mörkin komu af vítalínunni en hann gaf að auki eina stoðsendingu og fékk eina brottvísun. Að lokum tóku Amo menn á móti Alingsås þar sem gestirnir tóku stigin tvö með sér heim, lokatölur 27-32. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði þrjú mörk úr sjö skotum og gaf eina stoðsendingu. Amo menn eru komnir í sumarfrí en liðið forðaðist umspil um fall og var nokkuð frá því að komast í úrslitakeppnina. Í Danmörku gerðu Skanderborg og Skjern jafntefli í hörkuleik, 30-30 þar sem Kristján Örn Kristjánsson, Donni átti erfitt uppdráttar að þessu sinni en hann skoraði aðeins eitt mark úr fjórum skotum, gaf tvær stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki. Skanderborg áfram í öðru sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina. Hinn leikur kvöldsins var íslendingaslagur þegar Ringsted tók á móti TTH Holstebro. Ísak Gústafsson skoraði tvö mörk úr fjórum skotum og gaf tvær stoðsendingar á meðan Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði fjögur mörk úr sex skotum og gaf þrjár stoðsendingar fyrir heimamenn en það voru gestirnir sem unnu nauman sigur, 30-31. Jóhannes Berg Andrason komst ekki á blað fyrir gestina en hann klikkaði eina skotinu sínu og gaf eina stoðsendingu. Holstebro fór með sigrinum upp í fimmta sæti deildarinnar á meðan Ringsted eru áfram í níunda sæti í þéttum pakka með tveimur öðrum liðum. Að lokum mættu Drammen liði Halden í norsku deildinni á útivelli en liðin skildu jöfn, 27-27. Ísak Steinsson kom lítið við sögu í leiknum, líklega vegna meiðslanna sem héldu honum frá leikjum íslenska landsliðsins á dögunum. Drammen situr í fimmta sæti deildarinnar þegar þrír leikir eru eftir af deildarkeppninni. Úrslit kvöldsins: Skövde 30-34 Kristianstad GUIF 27-31 Karlskrona Önnereds 24-32 Sävehof Amo 27-32 Alingsås Skanderborg 30-30 Skjern Ringsted 30-31 TTH Holstebro Halden 27-27 Drammen

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.