Sjáðu stuðningsmann ÍBV taka í leikmann KA eftir leik
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Það var ótrúlegur leikur sem fram fór í Vestmannaeyjum í kvöld þegar ÍBV og KA mættust í fyrstu umferð 8-liða úrslitanna. Leikurinn fór alla leið í tvíframlengdan leik og það voru að lokum gestirnir í KA sem unnu leikinn með einu marki 34-33.

Morten Boe Linder sneri til baka í lið KA eftir erfið axlarmeiðsli og skoraði fjögur mörk úr fimm skotum og var betri en enginn. Hann hafði greinilega gaman af stuðningsmönnum ÍBV sem voru fjölmennir og skemmtu sér konunglega í stúkunni á meðan á leiknum stóð.

ÍBV með bakið upp við vegg eftir tap í tvíframlengdum leik.

Morten Boe Linder lét það ekki duga og segja mætti að hann hafi ögrað ungum stuðningsmönnum ÍBV sem voru svekktir eftir tap síns liðs og klappaði vel og ítrekað í átt að stuðningsmönnum ÍBV eftir leikinn. Á einhvern ótrúlegan hátt ákvað hann síðan að rölta í átt að stuðningsmönnum hópnum. Einn stuðningsmaður ÍBV var ekki skemmt en sá aðili hafði í aðdragandanum öskrað í átt að Norðmanninum "Morten er aumingi" en Handkastið er ekki kunngjört hvort Morten Boe viti hvað það þýðir.

Stuðningsmaður ÍBV tók í kjölfarið í Morten Boe og hrindi honum síðan frá auglýsingaskiltunum. Í kjölfarið kom starfsmaður á vellinum og lét nokkur vel valin orð falla til stuðningsmanns ÍBV.

Atvikið er hægt að sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top