Úrslitakeppnin í Olís-deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Fyrsti leikur á dagskrá fer fram í Vestmannaeyjum þegar ÍBV mætir KA klukkan 18:00 í Vestmannaeyjum. Hitað var upp fyrir úrslitakeppnina í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins þar sem Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfari Víkings var gestur í Rapyd-stúdíóinu. Hann var beðinn um að spá fyrir um einvígið milli KA og ÍBV. ,,Þetta verður erfitt fyrir KA að sækja á Eyjamenn ef þeir ná að fara í þessi hamskipti og það er auðvitað algjört spurningarmerki hvort Eyjamenn séu komnir með alla sína leikmenn aftur til baka úr meiðslum. Þeir voru með marga leikmenn meidda undir lok deildarinnar en ég held að það hafi taktískt verið sett upp svo menn séu klárir í þessa rimmu. Sennilega er það svipað hjá KA mönnum en þetta einvígi gæti mögulega farið í þrjá leiki. KA á heimavelli er allt önnur skepna en á útivelli en ég held að ÍBV hafi betur í fyrsta leik, bæði vegna reynslu og á þeim ham sem Vestmannaeyingar geta farið í þegar úrslitakeppnin byrjar. Ég sé þá ekki misstíga sig í þessari rimmu,” sagði Aðalsteinn. ,,Heldur þú að jafntefli KA gegn Þór í lokaumferðinni muni hafa áhrif á það hvernig þetta einvígi fer því að KA tapaði heimavallarréttinum með jafnteflinu gegn Þór í lokaumferðinni,” spurði Arnar Daði síðan Aðalstein. ,,Það hefði verið allt annað set-up. Ég held að þetta séu sterkustu heimavellirnir í deildinni. Það er ekki mikið vandamál fyrir okkur á höfuðborgarsvæðinu þar sem við getum liggur við farið á reiðhjóli á milli heimavalla en að fara í ferðalag og mæta norður eða fara til Eyja það er öðruvísi og eitthvað sem menn eru ekki að gera í hverri viku. Bæði KA og ÍBV eru hinsvegar vön því að ferðast í sína útileiki en ég er sammála því að með Bjarna í toppstandi og ef Morten Linder kemur inn þá hefði KA verið í mun betri stöðu með heimvallaréttinn," sagði Aðalsteinn meðal annars.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.