Ákvað snemma í ferlinu að hann vildi spila í Þýskalandi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson samdi á dögunum við þýska félagið TSV Hannover-Burgdorf og skrifaði undir þriggja ára samning sem tekur gildi í sumar. Hann gengur í raðir félagsins frá norska félaginu Kolstad eftir fjögur tímabil með félaginu.

Handkastið heyrði í Sigvalda og spurði hann út í þá ákvörðun hans að hafa valið Hannover-Burgdorf en Handkastið hefur haft veður af því að Sigvalda hafi staðið til boða mörg félög.

,,Það voru nokkur tilboð sem mér stóðst til boða en mér leist best á Hannover. Þetta er geggjað lið og síðan var einhver þörf að fá að spila í þýsku úrvalsdeildinni. Ég er ógeðslega spenntur fyrir þessu og vera kominn í mjög gott lið fyrir næsta tímabil. Það verður gaman að sjá hvernig það verður fyrir mig að spila í sterkustu deild í heimi."

Þú varst orðaður við Gummersbach á tímabili. Varstu í einhverjum viðræðum við Gummersbach?

,,Ekki neitt, en það hefði verið skemmtilegt að spila fyrir Gaua en ég held að þetta hafi nú bara verið Íslands tengingin," sagði Sigvaldi.

En hvaðan voru þessi tilboð sem honum stóðst til boða?

,,Það voru nokkur lönd sem stóðu mér til boða að spila í en ég var snemma í ferlinu búinn að ákveða að mig langaði að spila í Þýskalandi. Ég tók snemma þá ákvörðun að vilja fara í skemmtilegt lið í þýsku úrvalsdeildinni."

En hvert verður hlutverk hans hjá nýja félaginu?

,,Ég er að fara í stórt hlutverk í Hannover, ég er að koma inn fyrir hornamanninn þeirra sem er að fara núna í sumar. Ég verð eldri gæinn með einum yngri hornamanni sem er svipað og þetta hefur verið hjá mér í Kolstad og mér finnst það mjög gott," sagði Sigvaldi en Marius Steinhauser er á leið til Rhein Neckar Löwen í sumar eftir fjögur tímabil hjá Hannover. Daniel Weber er síðan ungur hægri hornamaður sem verður samherji Sigvalda.

Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf. ,,Ég fór og heimsótti þá og spjallaði við Heiðmar og ég hlakka til að vinna með honum."

,,Ég er spenntur fyrir því að fara spila fyrir framan fulla stúku af áhorfendum í hverjum einasta leik. Allir leikir í deildinni verða ógeðslega erfiðir og það er eitthvað mig hefur langað í. Ég er búinn að vera í Noregi þar sem leikirnir eru stundum lala en í Þýskalandi verða allir leikir krefjandi sem er frábært."

Að lokum var Sigvaldi beðinn um að lýsa stöðunni hjá núverandi félagi hans, Kolstad sem hefur verið að missa hvern lykilmanninn af fætur öðrum vegna fjárhagsvandræða.

,,Þetta er vont, mjög vont. Maður hefur pælt í þessu fram og til baka. Okkur fjölskyldunni líður mjög vel þarna og við höfum eignast tvö börn í Noregi. Þrándheimur á stórt pláss í mínu hjarta og það verður erfitt að kveðja félagið. Mig langar að klára þetta vel og með titli. En það voru margir að fara og þetta er orðið aðeins öðruvísi núna. Ég er að verða 32 ára þessu ári og ég hef ekkert endalausan tíma til að byggja eitthvað lið upp. Ég vil fara spila á hæsta leveli en það kom alveg til greina að vera áfram hjá Kolstad en á þessum tímapunkti úr því sem komið var þá vildi ég fara til Þýskalands. Það voru orðnar breyttar aðstæður í Kolstad og þetta var ekki eins og þetta var til að byrja með en það er bara eins og það er," sagði Sigvaldi Björn Guðjónsson að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top