Janus Daði kynntur sem leikmaður Barcelona
Barca

Janus Daði Smárason var nú í morgun kynntur sem leikmaður Barcelona frá og með næsta sumri. Janus Daði gengur í raðir Barcelona frá ungverska stórliðinu Pick Szeged.

Janus Daði gerir þriggja ára samning við Barcelona sem gildir til sumarsins 2029.

Janus Daði hefur víða komið við á ferlinum en það hefur lengi legið fyrir að Janus Daði yrði leikmaður Barcelona frá og með sumrinu en hann sást í Barcelona fyrr á þessu tímabili með forráðamönnum félagsins.

Janus Daði verður þar með liðsfélagi Viktors Gísla Hallgrímssonar sem er á sínu fyrsta tímabili hjá spænska félaginu. Janus sem er uppalinn hjá Selfossi gekk ungur að árum í raðir Hauka þar sem hann sló heldur betur í gegn í Olís-deildinni.

Þaðan fór hann síðan til Álaborg og Göppingen þangað til hann gekk í raðir Kolstad í Noregi. Vegna fjárhagsvandræða félagsins var dvöl hans hjá Kolstad styttri en gert var ráð fyrir og gekk hann í raðir Magdeburg í kjölfarið þar sem hann var í eitt tímabil. Hann er nú á sínu öðru tímabili með Pick Szeged í Ungverjalandi.

Janus Daði verður fimmti íslenski handknattleiksmaðurinn sem leikur fyrir Barcelona en Viggó Sigurðsson var sá fyrsti í sögunni. Guðjón Valur Sigurðsson var sá annar og Aron Pálmarsson sá þriðji.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top