Óðinn Þór óstöðvandi í sigri
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Íslenski landsliðsmaðurinn, Óðinn Þór Ríkharðsson var óstöðvandi í hægra horni Kadetten Schaffhausen í svissnesku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Óðinn gerði sér lítið fyrir og skoraði tólf mörk úr tólf skotum í sex marka sigri liðsins gegn Bern á útivelli, 30-24. Kadetten Schaffhausen voru sjö mörkum yfir í hálfleik 15-8 og voru með yfirburði í leiknum allan leikinn.

Þetta er í sjötta sinn á tímabilinu sem Óðinn skorar tíu mörk eða meira í svissnesku deildinni í vetur.

Félagið hefur nú þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn en Kadetten urðu bikarmeistarar fyrr á tímabilinu. Ein umferð er eftir af tímabilinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top