Kristján Örn Kristjánsson, Donni og samherjar hans í Skanderborg AGF tryggðu sér sögulegan árangur félagsins með því að tryggja sér 2. sætið í deildarkeppninni eftir jafntefli gegn Skjern í lokaumferð dönsku úrvalsdeildarinnar í gærkvöldi. Skanderborg AGF hefur þar með skrifað nýjan kafla í sögu félagsins. Með 30–30 jafntefli gegn Skjern tryggði liðið sér annað sætið í deildarkeppni Bambuni deildarinnar sem er besti árangur í sögu félagsins. Staðan þýðir að liðið fer inn í úrslitakeppnina í sterkri stöðu, sem jafnan eykur líkurnar á að komast í undanúrslit um danska meistaratitilinn en átta efstu lið deildarkeppninnar leika nú í tveimur fjögurra liða riðlum. 2.sætið byrjar riðlakeppnina með flest stig í sínum riðli áður en keppni í úrslitakeppninni hefst. Þjálfari liðsins, Nick Rasmussen er ánægður með árangurinn. ,,Ég er mjög ánægður, en það þarf að meta þetta almennilega þegar tímabilið er búið. Þetta sýnir stuðningsmönnum að félagið er á réttri leið. Við munum spila í Evrópudeildinni aftur á næsta tímabili í þriðja sinn á fimm árum og það sendir skýr skilaboð um að við bjóðum upp á aðlaðandi umhverfi,“ segir hann. GOG endaði í 3.sæti tveimur stigum á eftir Skanderborg en Álaborg höfðu mikla yfirburði í deildinni en liðið tapaði einu leik á tímabilinu og það var í gærkvöldi gegn Bjerringbro/Silkeborg.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.