Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, var ánægður með hvernig liðið mætti til leiks í síðasta deildarleik tímabilsins þegar Valur vann ÍBV 30-28. Valur voru með góða forystu í hálfleik en í síðari hálfleik þá missti liðið niður forystuna og ÍBV var komið yfir þegar nokkrar mínútur voru eftir af leiknum og sagði Anton hafa alltaf verið á leiðinni að taka leikhlé til að stoppa áhlaupið. "Það kom svolítið óðagot á okkur og við slúttuðum nokkrum sóknum of snemma, tæknifeilar og fleira en við náum að koma til baka og það sýndi styrkleika". Anton er gríðarlega ánægður með liðsheildina hjá liðinu í allan vetur og viðurkenndi að tímabilið væri búið að vera töff með öll þessi meiðsli sem liði hafi lent í en hann sé rosalega stoltur af stelpunum að hafa klárað þennan titil. Allt viðtalið má sjá hér að neðan:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.