Valur tók á móti ÍBV á Hlíðarenda í dag í síðasta leik Olís deildar kvenna í vetur. Leikurinn átti að fara fram síðustu helgi en var frestað um viku vegna slæmra veðurskilyrða. Valur byrjaði leikinn betur og náði þriggja marka forskoti, 6-3. Eyjakonur voru þó snöggar að jafna leikinn á ný og var jafnt á öllum tölum þangað til fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Þá náði Valur að skora fjögur síðustu mörkin og breyta stöðunni í, 17-12 og þannig stóðu leikar í hálfleik. ÍBV byrjaði síðari hálfleikinn af miklum krafti og náði að jafna leikinn í 21-21 þegar fimmtán mínútur vour búnar af síðari hálfleik. Það var mikil spenna það sem eftir lifði leiks og voru ÍBV marki yfir þegar um sex mínútur voru eftir af leiknum en þá eins og í síðustu leikjum tóku Valskonur við sér og sigldu fram úr í restina og unnu að lokum tveggja marka sigur, 30-28. Elísa Elíasdóttir var markahæst í liði Vals í dag með 7 mörk en hjá ÍBV var Sandra Erlingsdóttir frábær með 12 mörk. Hafdís Renötudóttir var mætt aftur í markið hjá Val eftir að hafa fengið höfuðhögg í landsleik á dögunum og varði 8 skot en hjá ÍBV var Amalia Froland með 12 varin skot. Valur hafði tryggt sér deildarmeistaratitilinn fyrr í vetur en bikarinn fór á loft á Hlíðarenda í dag í leikslok og hafa Valskonur því tryggt sér 2 af 3 titlum sem er í boði í vetur og bara sá stóri eftir. Valur og ÍBV fara nú í smá frí meðan 6 liða úrslit klárast og andstæðingar þeirra liggja fyrir í undanúrslitum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.