Við heyrðum í Sverri Eyjólfssyni þjálfara Stjörnunnar og spurðum hann aðeins út í sigur Stjörnunnar gegn Fjölni í Egilshöllinni á þriðjudagskvöldið í undanúrslitaeinvíginu um laust sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Þetta var fyrsti sigur Stjörnunnar í ansi langan tíma og var heldur betur kærkominn þar sem Garðbæingar voru með bakið upp við vegg. Oddaleikur framundan í dag klukkan 16:30 í Heklu höllinni í Garðabæ. Mikið undir og þar verður leikið til þrautar en sigurliðið úr leiknum í dag mætir Herði í úrslitaeinvíginu um laust sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð. ,,Það var ánægjulegt að vinna, vörnin fín en eigum enn inni sóknarlega. Meiri áræðni, kraftur og þor en í síðasta leik, náðum að hlaupa betur upp og sóknin var betri þrátt fyrir að við séum enn að gera of mikið af klaufalegum mistökum. Oddaleikurinn verður naglbítur þar sem allt er undir og erum við spenntir fyrir verkefninu," sagði Sverrir Eyjólfsson nýráðinn aðalþjálfari Stjörnunnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.