Stymmi Spáir í leiki dagsins

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi.

Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins

Stjarnan - Fjölnir (Laugardag 16:30) / Sigurvegari: Stjarnan

Það verður allt undir í Garðabænum þegar Stjarnan og Fjölnir eigast við í oddaleik í undanúrslitum um sæti í Olís deild karla að ári. Stjarnan vann sinn fyrsta leik í 129 daga þegar þeir tryggðu sér oddaleikinn með sigri í Egilshöll fyrr í vikunni. Fjölnir eiga að koma pressulausir inn í þennan leik meðan öll pressan ætti að vera á Stjörnunni sem fyrirfram er talið með mun sterkara lið. Hvernig mun liðið höndla þessa perssu er hisn vegar allt annað mál. Það var enginn að búast við Fjölnir í Olís deildinni á næsta ári meðan það væri katastrófa ef Stjarnan myndi tapa sæti sínu í deildinni. Garðbæingar geta þó andað léttar þar sem ég held að Stjarnan sýni styrk sinn og vinni þennan leik þægilega á morgun og tryggi sér í úrslitaleik gegn Herði um sæti í deild þeirra bestu. Stjarnan vinnur þennan leik með 5+ mörkum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top