
Einnar mínútu þögn verður fyrir Hafnarfjarðarslag Hauka og FH í undanúrslitum Íslandsmótsins sem fram fer í kvöld klukkan 19:00 til minningar um Hafnfirðinginn, Björgvin Halldórsson sem lést í gær á heimili sínu 75 ára að aldri. Björgvin Halldórsson fæddist í Hafnarfirði og varð fyrstur tónlistarmanna til að fá sérstaka stjörnu sér til heiðurs í stéttina fyrir framan Bæjarbíó í Hafnarfirði. Björgvin átti einstakan tónlistarferil og setti mark sitt á tónlistarsögu Íslendinga. Það er Vísir.is sem greinir frá því að einnar mínútu þögn verður haldin fyrir leikinn. Leikurinn verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans en útsendingin hefst klukkan 18.45. Um er að ræða annan leik Hauka og FH í undanúrslitum Íslandsmótsins en FH leiðir í einvíginu 1-0 en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í úrslitarimmunni. ,,Það er við hæfi að Hafnfirðingsins Björgvins Halldórssonar sé minnst þegar Hafnarfjarðarliðin tvö mætast í kvöld," segir í frétt Vísi og tökum við í Handkastinu undir þau orð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.