
Línumaðurinn Arnbjörg Bertha Kristjánsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Gróttu. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðla síðu sinni fyrr í dag. Arnbjörg sem er uppalinn hjá Fram gengur í raðir Gróttu frá Víkingi þar sem hún hefur leikið að undanförnu eins og segir í fréttatilkynningunni. ,,Arnbjörg er 21 árs gömul, hávaxin og sterkur varnarmaður. Við bindum vonir um að hún taki næstu skref í herbúðum Gróttu á næstu árum," segir í tilkynningunni frá Gróttu sem endaði í 2.sæti Grill66-deildarinnar og er á leið í úrslitaeinvígi gegn Stjörnunni í umspili um laust sæti í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð. ,,Við erum ánægð með komu Arnbjargar í Gróttu. Hún mun styrkja liðið á báðum endum vallarins og auka breidd liðsins í okkar sterka leikmannahópi. Ég hlakka mikið til að byrja að vinna með henni að loknu umspilinu", sagði Júlíus Þórir Stefánsson þjálfari liðsins við undirritun samningsins. Arnbjörg Bertha var sjötti markahæsti leikmaður Víkings á tímabilinu með 31 mark í 19 leikjum en Víkingur endaði í 3.sæti Grill66-deildarinnar en féll úr leik í umspilinu eftir tap gegn Gróttu í tveimur leikjum. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.