Leipzig framlengir við Bombac
Laurent Sanson - AFP)

Þýska handknattleiksfélagið SC DHfK Leipzig hefur framlengt samning sinn við slóvenska leikstjórnandann Dean Bombač. Nýi samningurinn bindur Bombač við félagið til ársins 2027. 

Bombač, sem gekk til liðs við Leipzig í upphafi tímabilsins hefur reynst mikilvægur hlekkur í sóknarleik liðsins. Hefur Slóveninn komið með dýrmæta reynslu inn í hópinn við erfiðar aðstæður en liðið situr á botni þýsku úrvalsdeildarinnar.

Í tilkynningu félagsins kemur fram að mikil ánægja ríkir með framlag hans og líti á hann sem lykilmann í áframhaldandi uppbyggingu liðsins en tekið er fram að Bombač verði áfram í Leipzig þó svo að það verði örlög félagsins að leika í þýsku B-deildinni á næstu leiktíð.

Sjálfur hefur Bombač einnig lýst ánægju sinni með að halda áfram hjá félaginu og segir að hann finni sig vel innan liðsins og í borginni.

Blær Hinriksson leikur með Leipzig en hann gerði eins árs samning við félagið síðasta sumar. Ekki er vitað hvað tekur við hjá Blæ eftir tímabilið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top