Andrea Ósk í Mosfellsbæinn

Andrea Ósk Þorkelsdóttir hefur gengið til liðs við Aftureldingu í Grill 66 deild kvenna. Hefur hún gert samning þess efnis að hún leiki með liðinu næstu 2 árin. Hún er fædd 1994 og er því á 32. aldursári.

Andrea Ósk er uppalin í Mosfellsbænum hjá Aftureldingu en hefur undanfarin ár verið að spila hjá Víking. Hún er línumaður sem hefur líka stundum leyst af hornastöðuna. Einnig er hún sterk varnarlega og er ófyrirleitin í sinni nálgun.

"Við erum virkilega stolt að Andrea hafi ákveðið að snúa heim í uppeldisfélagið og ætli að taka þátt í þeirri uppbyggingu og vegferð sem er framundan" segir í tilkynningu frá Aftureldingu nú í morgun.

Afturelding hafnaði í 7. sæti af 8 liðum í Grill 66 deild kvenna á leiktímabilinu nú sem leið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top