

Ísland mætir Portúgal í heinum úrslitaleik um laust sæti á Evrópumótinu þegar liðin mætast í lokaumferð undankeppni EM á Ásvöllum á morgun. Stelpurnar okkar eru með bakið upp við vegg eftir slæmt tap gegn Færeyjum á miðvikudaginn og þurfa tveggja marka sigur gegn Portúgal til að tryggja sér sæti á Evrópumótinu. Portúgal er einnig að berjast um sæti á Evrópumótinu og því er þetta mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Leikurinn hefst klukkan 16:00 en uppselt er á leikinn. ,,Ég geri ráð fyrir mjög erfiðum leik. Það er mikill uppgangur í kvennahandboltanum í Portúgal eins og víða annarsstaðar í Evrópu," sagði Arnar Pétursson í samtali við Handkastið. Lið Portúgals er byggt í kringum leikmenn sem fæddar eru í kringum 2004 en sá árgangur náði góðum árangri á stórmótum yngri landsliða á sínum tíma. ,,Ég finn fyrir hungri hjá stelpunum að gera betur heldur en í leiknum gegn Færeyjum á miðvikudaginn. Sá leikur var mikil vonbrigði og frammistaðan var einfaldlega ekki nægilega góð. Við höfum horft mikið í okkar eigin frammistöðu í síðustu verkefnum og frammistaðan í Færeyjum var ekki góð. Við erum staðráðnar í því að gera betur á morgun. Það sama á við um mig, ég átti ekki sjálfur góðan dag og þetta var einfaldlega erfitt." Portúgal er með fjögur stig í 3.sæti riðilsins en Portúgal vann fyrir leik liðanna á heimavelli með einu marki og vann síðan Færeyjar á heimavelli 25-23. ,,Ég vonast til að allt annað verði upp á teningnum í leiknum á sunnudaginn. Það er mikið undir og við mætum vel undirbúnar í leikinn og ætlum að leggja allt í sölurnar," sagði Arnar Pétursson sem staðfesti að allir þeir leikmenn sem eru í þessu verkefni eru heilar heilsu og klárar í leikinn á morgun gegn Portúgal en leikurinn verður sýndur í beinni á RÚV. Rætt var um kvennalandsliðið í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.