
Öll Íslendingaliðin sem voru í eldlínunni í Evrópu fóru með sigur af hólmi í gærkvöldi. Íslendingaliðin MT Melsungen og Hannover-Burgdorf unnu sína leiki í Þýskalandi í gær. Viktor Gísli Hallgrímsson og liðsfélagar hans í Barcelona unnu sannfærandi sautján marka sigur á Ademar 48-31 en Barcelona var 26-15 yfir í hálfleik. Viktor Gísli varði sjö skot í leiknum og var með í kringum 30% markvörslu. Það þarf ekkert að taka það fram hvar í deildinni Barcelona er eftir sigurinn. Í Austurríki skoraði Tumi Steinn Rúnarsson fimm mörk í tveggja marka sigri Alpla Hard gegn Linz í toppslag deildarinnar. Alpla Hard vann leikinn 26-24 á heimavelli. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði ekki mark fyrir Alpla Hard en gaf eina stoðsendingu. Alpla Hard er á toppi deildarinnar með 25 stig eftir 20 leiki og er liðið tveimur stigum á undan Voslauer sem á leik inni. Linz er í 3. sæti með 22 stig. Hannes Jón Jónsson er þjálfari Alpla Hard sem eiga tvo leiki eftir í deildinni áður en úrslitakeppnin fer af stað. Sveinn Jóhannsson var ekki í leikmannahópi Chambéry í þriggja marka sigri liðsins gegn Tremblay í frönsku úrvalsdeildinni. Chambéry vann leikinn 36-33 eftir að hafa verið fjórum mörkum undir í hálfleik 16-20. Tveimur stigum munaði á liðunum fyrir leikinn en Chambéry heldur 5.sætinu og er með 28 stig á meðan Tremblay er áfram í 6.sætinu með 24 stig þegar sjö umferðir eru eftir af deildarkeppninni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.