Sjáðu rauðu spjöldin á Akureyri – Báðir sluppu við bann
Egill Bjarni Friðjónsson

Þorgils Jón Svölu Baldursson leikmaður Vals og Arnór Ísak Haddsson leikmaður KA sluppu báðir við leikbönn þrátt fyrir að hafa fengið að líta rauða spjaldið í öðrum leik KA og Vals sem fram fór á fimmtudagskvöldið.

Valur vann leikinn með þremur mörkum 33-30 eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik 19-14. Valur vann fyrsta leik liðanna með átján marka mun 39-21.

Valur leiðir því í einvíginu 2-0 í undanúrslitum Íslandsmótsins en liðin mætast í þriðja sinn í Valsheimilinu á mánudagskvöld. Með sigri þar geta Valur tryggt sér sæti í úrslitum Íslandsmótsins og mæta þar annað hvort Haukum eða FH.

Bæði Þorgils Jón og Arnór Ísak fengu rautt spjald á sama tíma í leik liðanna á fimmtudagskvöldið en það sauð uppúr í leiknum á því mómenti. Margir hafa velt því fyrir sér fyrir hvað Þorgils Jón fékk að líta rauða spjaldið en dómarar leiksins mátu brotið falli undir reglu 8:5. Brot Arnórs Ísaks var hinsvegar metið sem brot á reglu 8:9. ,,Með tilvísun til 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins."

Rætt var um atvikið í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

Dómarar leiksins voru þeir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson. Hér að neðan má sjá atvikið sem átti sér stað undir lok fyrri hálfleiks og dæmir hver fyrir sig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top