Stymmi Spáir í leiki dagsins

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi.

Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins

Hörður - Stjarnan (Laugardagur 18:00) / Sigurvegari: Stjarnan

Stjarnan vann síðasta leik þessara liða með fimmtán mörkum í Garðabænum þar sem Siggi Dan fór á kostum í markinu og var með 55% markvörslu. Ég sé það ekki alveg endurtaka sig í kvöld og munu Harðverjar vilja sýna að þessi leikur á miðvikudaginn hafi verið algjört slys. Stjarnan er hægt og rólega að finna sjálfstraustið aftur eftir erfiðan tíma í vetur og sýndu að þeir eru miklu sterkara lið og munu fara Vestur og vinna leikinn þægilega og koma sér í 2-0.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top