Þrír leikmenn orðaðir við Hannover-Burgdorf
Tom Weller / AFP

Sögusagnir eru nú á kreiki um leikmannamál hjá þýska handboltaliðinu TSV Hannover-Burgdorf en landsliðsmaðurinn, Sigvaldi Björn Guðjónsson gengur í raðir félagsins frá Kolstad í sumar.

Samkvæmt þýska miðlinum Sport Bild er svissneska vinstri skyttan Lenny Rubin orðaður við félagið en hann hefur einnig verið orðaður við Rhein-Neckar Löwen. Nýjustu upplýsingar benda þó til þess að þrátt fyrir að Löwen sé að leita að vinstri skyttu, sé Rubin ekki sá leikmaður sem þeir hyggjast sækja.

Í staðinn beinast spjótin nú að Hannover-Burgdorf, sem samkvæmt Sport Bild íhugar að fá Rubin til liðs við sig. Samningur hans við TVB Stuttgart rennur út 30. júní. Athyglin beinist því nú helst að Hannover-Burgdorf í tengslum við hinn 30 ára gamla Svisslending.

Auk Lenny Rubin er sagt að Hannover-Burgdorf hafi einnig augastað á Sebastian Heymann frá Rhein-Neckar Löwen og Philipp Ahouansou frá HSG Wetzlar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top