Stjarnan komnir í 2-0 í úrslitaeinvíginu eftir góðan sigur á Ísafirði
Sævar Jónasson

Í dag mættust Hörður og Stjarnan í 2. leik úrslitaeinvígis í umspili um Olís sæti á næstu leiktíð. Leikið var á Torfnesi á Ísafirði.

Stjörnumenn tóku strax öll völd á leiknum og voru mun betri aðilinn. Eftir korter var staðan orðin 4-8 fyrir gestina úr Garðabænum. Heimamenn náðu mest að minnka muninn í 2 mörk í fyrri hálfleik en nær komust þeir ekki. Hálfleikstölur voru síðan 10-13 fyrir Stjörnuna.

Í seinni hálfleik náðu Stjörnumenn aldrei að slíta heimamenn alveg frá sér. Að sama skapi vantaði heimamönnum herslumun að ná að jafna leikinn oft á tíðum. Hefðu þeir jafnað leikinn hefði leikurinn mögulega snúist. Stjarnan var lengst af 2-4 mörkum yfir í seinni hálfleik. Í stöðunni 21-23 þegar rúm 1 og hálf mínúta var eftir þá fengu Harðverjar gott færi til að minnka í eitt en klikkuðu því og hver veit hvað gerst hefði eftir það.

Lokatölur 21-24 og Stjarnan komnir í 2-0. Þeir komnir í algjört dauðafæri að klára þetta 3-0 á sínum heimavelli í næsta leik. Næsti leikur verður á miðvikudagskvöldið næstkomandi í Mýrinni kl. 18:30.

Hjá Stjörnunni var Ísak Logi Einarsson markahæstur með 11 mörk. Sigurður Dan varði 7 skot.

Hjá Herði var Stefán Freyr Jónsson með 11 bolta varða í markinu. Jose Esteves Neto setti 6 mörk.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top