Króatíski þjálfarinn Lino Červar hefur verið ráðinn nýr þjálfari makedónska handknattleiksliðsins Eurofarm Pelister. Červar er einn sigursælasti þjálfari Evrópu, en hann hefur á ferlinum stýrt króatíska landsliðinu til fjölmargra titla, þar á meðal á Ólympíuleikum og heimsmeistaramótum. Þá hefur hann einnig náð góðum árangri sem þjálfari félagsliða meðal annars með RK Zagreb og Metalurg Skopje. Það sem vekur hvað mesta athygli með þessari ráðningu er að hann verður 76 ára síðar á árinu og hefur ekki þjálfað félagslið frá árinu 2019 en þá þjálfaði hann RK Zagreb í eitt tímabil. Hann stýrði króatíska landsliðinu síðast á árunum 2017-2021. Eurofarm Pelister hefur gengið í gegnum töluverðar breytingar á undanförnu tímabili, þar sem óstöðugleiki hefur verið á þjálfarastólnum og árangur liðsins ekki verið í samræmi við væntingar. Með ráðningu Červar vonast forráðamenn félagsins til að ná aftur stöðugleika og styrkja stöðu liðsins bæði heimafyrir og í Meistaradeildinni. Eurofarm Pelister fékk sex stig í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í ár en liðið situr í 3.sæti deildarinnar heimafyrir þegar tvær umferðir eru eftir og eru í baráttu um 2.sætið við Ohrid. Ráðning Červar er talin stórt skref fyrir félagið, enda býr hann yfir gríðarlegri reynslu og þekkingu sem gæti reynst lykilatriði í uppbyggingu liðsins á komandi misserum. Ekki hefur verið greint frá lengd samnings hans við félagið, en ljóst er að væntingar eru miklar til þess að hinn reynslumikli þjálfari leiði Eurofarm Pelister aftur á toppinn í heimalandinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.