Færeyski landsliðsmaðurinn og leikmaður GOG í Danmörku, Óli Mittún er sagður ganga í raðir Magdeburg sumarið 2027. Heimildarmenn Handkastsins segja að Magdeburg hafi viljað fá Færeyinginn strax í sumar en danska liðið hafi ekki tekið það í mál. Óli mun hinsvegar ganga í raðir þýsku meistarana í Magdeburg sumarið 2027. Óli sem er uppalinn hjá H71 í Færeyjum lék þrjú tímabil með Savehof í Svíþjóð áður en hann gekk í raðir GOG í sumar og er á sínu fyrsta ári með félaginu. Hann hefur slegið í gegn bæði með GOG og færeyska landsliðinu á þessu tímabili og var eftirsóttur af stærstu liðum Evrópu. Nú virðist hinsvegar allt benda til þess að hann verði leikmaður SC Magdeburg frá og með sumrinu 2027.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.