Danski landsliðsmaðurinn Mads Svane mun yfirgefa Bjerringbro-Silkeborg Handbold þegar samningur hans rennur út sumarið 2027 og gengur til liðs við dönsku meistarana í Álaborg. Þetta staðfesti Bjerringbro-Silkeborg í tilkynningu á heimasíðu sinni á mánudaginn. Næsta tímabil verður því það síðasta hjá hinum 24 ára gamla danska landsliðsmanni sem vann til gullverðlauna með danska landsliðinu í janúar. Svane kom til BSH frá Mors-Thy síðasta sumar og hefur hann fest sig í sessi sem einn af sterkari leikmönnum dönsku deildarinnar og unnið sér sæti í danska landsliðinu. „Þegar ég kom til BSH hafði ég metnað til að bæta mig sem leikmann, en ég bjóst ekki við að framfarirnar yrðu svona hraðar,“ sagði Svane í tilkynningu félagsins og þakkaði bæði liðsfélögum og þjálfurum fyrir stuðninginn. Forráðamenn BSH sögðust hafa viljað halda Svane áfram hjá félaginu en bæru virðingu fyrir ákvörðun hans um að taka næsta skref á ferlinum með Álaborg. Þrátt fyrir að framtíðin sé nú ráðin leggur Svane áherslu á að einbeitingin sé áfram hjá BSH. „Markmið mitt er að hjálpa félaginu aftur í toppbaráttu dansks handbolta. Við viljum komast í undanúrslit, leika í Final4 og berjast um verðlaun á næsta tímabili,“ sagði hann.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.