Bjarki Már mættur til Japans
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Franska stórliðið Paris Saint-Germain hélt til Japans á mánudaginn þar sem liðið mun eyða nokkrum dögum í Tókýó sem hluta af undirbúningi sínum fyrir komandi tímabil.

Lið Stefan Madsen hóf undirbúning sinn fyrir leiktíðina 2026/27 þann 22. júlí og eftir tæplega viku af æfingum í Frakklandi heldur hópurinn af stað 28. júlí í svokallaða „Japan Tour 2026“.

Æfingaferðin til Japans er orðin fastur liður í undirbúningi PSG og er þetta fjórða árið í röð sem félagið heimsækir Tókýó.

Fyrirliðinn Luka Karabatic er eini leikmaðurinn sem hefur tekið þátt í öllum ferðunum hingað til. Nýju leikmennirnir Rodrigo Corrales, Bjarki Már Elísson og Frederik Ladefoged fara hins vegar í ferðina í fyrsta sinn.

Samkvæmt PSG bíður leikmanna stíf dagskrá í japönsku höfuðborginni. Liðið verður með tvær æfingar á dag auk þess sem það leikur tvo æfingaleiki. Sá fyrri verður gegn japanska liðinu Zeekstar Tokyo en sá síðari gegn U-landsliði Japans. Leikirnir fara fram 4. og 5. ágúst.

Að lokinni dvölinni í Japan snýr PSG aftur til Frakklands áður en liðið heldur í aðrar æfingabúðir í Danmörku og Þýskalandi.

Dagana 15. og 16. ágúst tekur félagið síðan þátt í HSG Premium Cup þar sem einnig verða á meðal þátttakenda þýska liðið Nordhorn-Lingen, Füchse Berlin og spænsku meistararnir í Barcelona.

Japansferðin verður því mikilvægur liður í undirbúningi PSG áður en liðið mætir sterkri mótherjum á síðustu æfingamótum sumarsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top