
Anton Rúnarsson þjálfari kvennaliðs Vals hefur gert góða hluti á sínu fyrsta ári sem þjálfari liðsins en liðið er handhafi bikar- og deildarmeistaratitilsins auk þess sem liðið vann Meistarakeppni HSÍ í upphafi tímabils. Handkastið sló á þráðinn til Antons á dögunum og spurði hann út í veturinn hingað til en framundan er undanúrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn þar sem Valur mætir Fram. Hefst undanúrslitin í næstu viku. ,,Við í þjálfarateyminu erum hrikalega stoltir af liðinu og hvernig þær hafa tæklað tímabilið og alla vinnuna sem þær hafa lagt inn frá upphafi. Það er alls ekki sjálfgefið að hafa náð að klára Deildarmeistaratitilinn miðað við öll meiðslin sem hafa komið upp á tímabilinu og þær breytingar sem urðu frá síðasta tímabili. Þær hafa leyst þetta mjög vel í vetur og margir leikmenn stígið upp í liðinu sem hefur verið frábært að fylgjast með," sagði Anton sem segir ekkert hafa komið sér eitthvað sérstaklega á óvart sem þjálfari kvennaliðs í fyrsta skipti á þjálfaraferlinum. ,,Leikmennirnir hafa þurft að leysa ýmsa hluti á tímabilinu vegna meiðsla og höfum við einnig þurft að skipta um eða breyta takti eftir því. Þær hafa alltaf verið klárar í það sem hefur verið frábært að sjá og skemmtilegt verkefni að takast á við í sameiningu. Þær eiga mikið hrós skilið fyrir það." ,,Markmið tímabilsins var að ná fram góðri frammistöðu og stöðugleika í liðið yfir tímabilið. Valur vill alltaf vera í toppbaráttu og berjast um alla titla sem eru í boði hverju sinni." Eins og fyrr segir er úrslitakeppnin framundan þar sem Valur mætir Fram í undanúrslitum. Í hinu undanúrslitaeinvíginu mætast ÍBV og Haukar. ,,Við erum mjög ánægð með að hafa klárað deildina. Úrslitakeppnin leggst bara vel í okkur og mætum við klárar í hana. Það verður spennandi að glíma við hana. Þetta er skemmtilegasti tími ársins og við munum leggja allt í sölurnar til að spila okkar leik og ná fram góðum úrslitum." Mikil umræða hefur verið innan handboltahreyfingarinnar um að stækka Olís deildina í 10 lið. Anton var spurður út í sína skoðun á því. ,,Ég held að það sé alltaf hollt að taka umræðuna reglulega hvað er best fyrir deildina og íslenskan kvennahandbolta. Það er mikilvægt að félögin taki samtalið hjá sér einnig og ræði saman. Það er klárt mál að mismunandi skoðanir eru á þessu milli félaganna. Það eru margir vinklar á þessu og það þarf að ræða hlutina út frá mörgum sjónarhornum. Ég held að það sé alveg spennandi að fara í 10 liða deild á einhverjum tímapunkti en hvort það sé rétt að gera það núna eða á næsta ári þarf að vega og meta einnig," sagði Anton Rúnarsson þjálfari Vals að lokum í samtali við Handkastið.
Spennandi að fara í 10 liða deild

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.