Orri skoraði þrjú í stórsigri Sporting á Benfica
portal.fpa.pt

Orri Freyr Þorkelsson og félagar hans í Sporting Lissabon hófu nýtt tímabil með titli þegar liðið lagði Benfica 31–24 í úrslitaleik portúgölsku Ofurbikarkeppninnar í handbolta í Santo Tirso í gær.

Sporting tók öll völd strax í upphafi og var með yfirburði í fyrri hálfleik. Staðan var 15–6 þegar flautað var til hálfleiks og Benfica átti fá svör við sterkri vörn Sporting og góðri markvörslu Mohamed Ali, sem var valinn maður leiksins.

Orri Freyr átti góðan leik fyrir Sporting og skoraði þrjú mörk. Hann skoraði tvívegis strax í upphafi leiks, þar af eitt úr vítakasti, og kom Sporting í 5–2. Hann bætti síðan við þriðja marki sínu í síðari hálfleik.

Sporting hélt áfram að stjórna leiknum eftir hlé og náði mest 12 marka forskoti, 22–10. Benfica tókst að minnka muninn undir lokin en sigur Sporting var aldrei í verulegri hættu og lokatölur urðu 31–24.

portal.fpa.pt

Með sigrinum varð Sporting Ofurbikarmeistari í fjórða sinn í röð og í sjöunda sinn alls. Liðið hefur þar með unnið 11 innlenda titla í röð, sem undirstrikar yfirburði félagsins í portúgölskum handbolta undanfarin ár.

Benfica hefur hins vegar tekið miklum breytingum fyrir nýtt tímabil. Sænski þjálfarinn Anders Hallberg tók við liðinu í sumar og margir nýir leikmenn komu til félagsins. Meðal þeirra er íslenski markvörðurinn Breki Hrafn Árnason, sem gekk til liðs við Benfica frá Fram í sumar.

Breki kom hins vegar ekki við sögu í leiknum, samkvæmt þeim leikmannaupplýsingum sem liggja fyrir um úrslitaleikinn. Benfica tefldi fram Tobias Thulin í markinu.

portal.fpa.pt

Stiven Tobar Valencia lék með Benfica en samningur hans við félagið rann út í sumar og er án félags sem stendur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top