HM-undirbúningur Íslands í uppnámi – Egyptar hætta við Íslandsferð
Sævar Jónasson

Ekkert verður úr fyrirhuguðum landsleikjum Íslands og Egyptalands í janúar. Leikirnir áttu að fara fram hér á landi 7. og 9. janúar á næsta ári og vera hluti af undirbúningi íslenska landsliðsins fyrir heimsmeistaramótið í Þýskalandi.

Þetta staðfesti Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands, í samtali við Handkastið.

Egyptaland hefur dregið sig úr verkefninu og mun þess í stað halda æfingamót í heimalandinu á sama tíma og fyrirhugaðir landsleikir áttu að fara fram hér á landi. Upphaflega stóð til að Egyptar kæmu hingað í janúar og spiluðu tvo leiki gegn íslenska landsliðinu, líkt og Snorri Steinn greindi frá á blaðamannafundi HSÍ í mars.

„Ég tel að áhuginn verði töluverður og þetta er frábært fyrir alla að fá loksins leiki í janúar heima áður en við förum á HM,“ sagði Snorri þá um fyrirhugaða heimsókn Egypta. Þeir leikir verða því ekki að veruleika og HSÍ vinnur nú hörðum höndum að því að finna landsleiki fyrir íslenska liðið í aðdraganda heimsmeistaramótsins.

Það hefur reynst þrautin þyngri að finna mótherja á þessum tímapunkti enda eru flestar þjóðir löngu búnar að ganga frá sínum undirbúningsáætlunum fyrir HM. Því er ekki mikið framboð af lausum landsleikjum í janúar og tíminn orðinn naumur.

Ísland og Egyptaland mættust hins vegar í tveimur æfingaleikjum í Egyptalandi í maí síðastliðnum. Ísland hélt þar til í Egyptalands og spilaði tvo leiki gegn heimamönnum 13. og 15. maí. Var þá samkomulag milli sambandanna að Egyptaland myndi síðan koma til Íslands og leika tvo vináttulandsleiki við Íslands hér á landi í staðin.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top