Lovísa byrjar Benfica-ævintýrið á titli
Benfica

Lovísa Thompson hóf feril sinn með Benfica í Portúgal með glæsilegum hætti þegar hún varð meistari meistaranna með liðinu um helgina.

Benfica hafði betur gegn CJ Almeida Garrett / Pristivus, 35-25, í Supertaça Kempa Feminina og tryggði sér þar með fyrsta titil tímabilsins.

Lovísa, sem gekk til liðs við Benfica frá Val í sumar, skoraði tvö mörk í leiknum. Hún fékk 37 mínútur á vellinum og var því talsvert inni á hjá portúgalska stórliðinu.

Benfica lagði grunninn að sigrinum strax í fyrri hálfleik. Liðið fór með 22-10 forystu inn í hálfleik og þrátt fyrir að CJ Almeida Garrett hafi unnið síðari hálfleikinn 15-13 var sigur Benfica aldrei í verulegri hættu.

Nadia Rodrigues var markahæst hjá Benfica með sex mörk, en Catarina Bernardino og Maria Santos komu næstar með fimm mörk hvor.

Lovísa skrifaði undir samning við Benfica til ársins 2028 eftir að hafa yfirgefið Val. Benfica er eitt stærsta íþróttafélag Portúgals og kvennalið félagsins hefur verið ráðandi afl í portúgalska handboltanum.

Í samtali við Handkastið nýverið sagði Lovísa að aðlögunin að nýju félagi hefði gengið vel, þrátt fyrir að hún hefði veikst skömmu eftir komuna til Portúgals og því ekki náð að æfa af fullum krafti fyrstu dagana.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top