Það er ekki á hverjum degi sem sjálfsmark lítur dagsins ljós í handbolta og enn sjaldnar að það komi með hælnum. Það gerðist hins vegar í leik Bergsøy og Kolstad í norsku úrvalsdeildinni um helgina. Staðan var 19-13 fyrir Kolstad þegar Emil Andreas Raknes, leikmaður Bergsøy, ætlaði að senda boltann niður í vinstra hornið. Sendingin rataði hins vegar í hælinn á Sondre Mikal Solheim, varnarmanni Kolstad, og þaðan skoppaði boltinn beint í eigið mark. Solheim fékk því óvænt skráð á sig sjálfsmark með hælnum ansi sérstök leið til að bæta marki við leikinn en í tölfræði leiksins var markið skráð á Emil Raknes. Kolstad vann leikinn að lokum 33-23 og Solheim átti annars stóran þátt í sigrinum, með sex mörk og sjö stoðsendingar. Markið má sjá í myndskeiðinu neðst í fréttinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.