Blær skoraði fjögur í naumum sigri Leipzig
Tom Weller / dpa Picture-Alliance via AFP

Blær Hinriksson og félagar hans í SC DHfK Leipzig hófu tímabilið í 2. þýsku deildinni með sigri þegar liðið hafði betur gegn GWD Minden 24-23 í spennandi leik í Leipzig í kvöld.

Leipzig var marki undir í hálfleik 11-12, en náði að snúa leiknum sér í vil í síðari hálfleik. Minden hafði þó frumkvæðið lengi vel og komst í 22-21 þegar skammt var eftir.

Blær reyndist mikilvægur fyrir Leipzig og skoraði alls fjögur mörk, þar af eitt úr vítakasti þegar hann jafnaði metin í 22-22 á 56. mínútu.

Franz Semper tryggði Leipzig sigurinn með marki í lokin, 24-23, en hann skoraði síðustu tvö mörk liðsins.

Leipzig fékk því draumabyrjun á nýju tímabili eftir að hafa fallið úr þýsku úrvalsdeildinni síðasta vor og leikur nú í 2. Bundesligunni. Blær skoraði 111 mörk fyrir Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð sem var hans fyrsta með liðinu eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá Aftureldingu sumarið 2025.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top