Füchse Berlin hefur gengið frá samningi við franska línumanninn Théo Monar sem gengur í raðir félagsins næsta sumar. Monar kemur frá pólska stórliðinu Industria Kielce og hefur skrifað undir samning til ársins 2030. Monar tekur þar með við af Mijajlo Marsenić sem yfirgefur Berlínarliðið eftir yfirstandandi tímabil. Hann verður þriðji nýi leikmaðurinn sem gengur í raðir Füchse fyrir næsta tímabil en Simon Pytlick og Dika Mem ganga einnig í raðir félagsins næsta sumar. Monar er 25 ára gamall og fæddur í Fort-de-France á Martinique. Hann er 1,98 metrar á hæð og hefur verið einn af efnilegri línumönnum Frakka undanfarin ár. Hann steig sín fyrstu skref hjá HBC Nantes og lék með aðalliði félagsins frá 2020 til 2024. Hann gekk þá í raðir Kielce og hefur leikið með pólska liðinu undanfarin tvö tímabil. Í Meistaradeild Evrópu hefur hann skorað 35 mörk á hvoru tímabili fyrir sig. Monar hefur einnig verið í franska landsliðshópnum frá árinu 2021 og hefur því öðlast reynslu á hæsta stigi evrópsks handbolta. Füchse fær því öflugan og líkamlega sterkan línumann til liðs við sig og Monar fær það verkefni að fylla stórt skarð eftir Marsenić.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.