Tryggvi Garðar sá rautt í Noregi og Álaborg vann stórleikinn í Danmörku
THOMAS KIENZLE / AFP

Það var nóg um að vera í bæði Danmörku og Noregi í dag en bæði kvenna- og karladeildin er farin af stað í Noregi og önnur umferðin hélt áfram í Danmörku.

Við hefjum leik í Noregi þar sem fyrsta umferðin í norsku deildinni hélt áfram en hún hófst í gær. Elverum tók á móti nýliðum Viking en Tryggvi Garðar Jónsson lék sinn fyrsta deildarleik fyrir nýliðana en Tryggvi Þórisson var fjarri góðu gamni hjá Elverum. Tryggvi Garðar skoraði tvö mörk úr þremur skotum og fékk að líta rauða spjaldið og heimamenn í Elverum áttu ekki í miklum vandræðum með að tryggja sér stigin tvö, lokatölur urðu 38-27 fyrir Elverum.

Kvennadeildin er einnig farin af stað en Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði tvö mörk úr þremur skotum fyrir Larvik þegar liðið vann þægilegan heimasigur á Fana, 31-23.

Í Danmörku fór fram stórleikur þegar Álaborg tók á móti lærisveinum Arnórs Atlasonar í TTH Holstebro. Leikurinn var mjög jafn og spennandi en á endanum reyndust heimamenn sterkari og unnu nauman sigur, 31-29. Jóhannes Berg Andrason skoraði tvö mörk úr þremur skotum og gaf tvær stoðsendingar að auki.

Ribe-Esbjerg halda áfram góðri byrjun sinni en þeir eru jafnir á toppi deildarinnar ásamt GOG og Álaborg en þeir unnu sinn annan leik í dag þegar þeir unnu Fredericia á útivelli, 27-31. Elvar Ásgeirsson skoraði þrjú mörk úr sjö skotum og gaf eina stoðsendingu fyrir liðið sem fer vel af stað í ár.

Í næstefstu deild kvenna unnu Íslendingaliðið Rødovre góðan sigur á DHG Håndbold á útivelli, 25-29. Inga Dís Jóhannsdóttir skoraði tvö mörk og Thelma Melsteð skoraði eitt mark og fékk eina brottvísun að auki.

Úrslit dagsins:

Elverum 38-27 Viking

Larvik 31-23 Fana

Aalborg 31-29 TTH Holstebro

Fredericia 27-31 Ribe-Esbjerg

DHG Håndbold 25-29 Rødovre

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top