Sigvaldi Björn Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Hannover-Burgdorf þegar liðið tók á móti Rhein-Neckar Löwen í fyrsta leik sínum í þýsku Bundesligunni í gær. Ástæðan er bakmeiðsli sem íslenski landsliðsmaðurinn glímir enn við frá tíma sínum hjá norska félaginu Kolstad. Sigvaldi gekk í raðir Hannover-Burgdorf í sumar eftir fjögur tímabil hjá Kolstad, en meiðslin hafa sett strik í reikninginn á undirbúningstímabilinu. Samkvæmt þýska miðilinn Bild, hefur Sigvaldi nánast aðeins getað fylgst með undirbúningi Hannover-Burgdorf frá hliðarlínunni vegna meiðslanna. Fjarvera hans er því áfall fyrir Hannover-Burgdorf, en Sigvaldi var fenginn til félagsins til að fylla skarð Marius Steinhauser á hægri vængnum. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið eftir komu sína frá Kolstad. Sigvaldi þarf því enn að bíða eftir fyrsta deildarleik sínum fyrir Hannover-Burgdorf. Fjarvera hans í leiknum í gær kom þó ekki að sök en Hannover-Burgdorf vann eins marka sigur á Hauki Þrastarsyni og félögum í Rhein Neckar Löwen, 32-31.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.