Það vakti athygli að hvorki Sigurður Jefferson, Aron Rafn Eðvarðsson né Egill Jónsson voru í leikmannahópi Hauka í tapi liðsins gegn Val í Meistarakeppni HSÍ á föstudaginn síðastliðnum. Valur hafði betur í leiknum 31-26 eftir að hafa verið 15-14 yfir í hálfleik. Handkastið hafði áður greint frá því að Aron Rafn væri að glíma við meiðsli og væri að jafna sig á þeim en þar að auki tók hann út leikbann sem hann fékk eftir tap Hauka í oddaleik gegn FH í undanúrslitum Íslandsmótsins á síðustu leiktíð. Aron Rafn gæti því leikið með Haukum í 1.umferð Olís-deildarinnar næstkomandi sunnudag ef hann verður orðinn heill heilsu. Egill Jónsson, ungur og efnilegur hægri hornamaður Hauka hefur verið að glíma við meiðsli í lífbeininu en þetta staðfesti Gunnar Magnússon í samtali við Handkastið á dögunum. Hann gerir ekki ráð fyrir Agli klárum þegar tímabilið hefst en vonast þó til að hann verði kominn til baka um miðjan september. Sigurður Guarino Jefferson bandaríski landsliðsmaður Hauka sem gekk í raðir félagsins frá HK í sumar sagði í samtali við Handkastið að hann væri að glíma við smávægilega tognun og hafi því ekki getað spilað leikinn á föstudaginn. Hann vonast þó til að geta leikið með liðinu í 1.umferðinni gegn ÍBV næstkomandi sunnudag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.