Tilbúin að synda með stóru fiskunum
Eyjólfur Garðarsson

Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum.

Olís-deild kvenna hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni.

Í dag förum við yfir nýliða Gróttu.

Síðasta tímabil:
Grótta endaði síðasta tímabil í 2. sæti Grill 66 deildarinnar eftir harða baráttu við HK. Liðið tapaði svo fyrri Stjörnunni eftir oddaleik í umspili um sæti í Olís deildinni en tekur sæti eftir ákvörðunina að fjölga liðum í 10.

Þjálfarinn:
Júlíus Þórir Stefánsson er að fara inn í sitt annað heila tímabil með Gróttu liðið en hann hafði þó áður tekið við liðinu á miðju tímabili eftir að Sigurjón Friðbjörn Björnsson hætti með liðið. Júlíus hefur því reynslu af því að stýra liðinu í Olís deildinni sem gæti reynst dýrmæt nú þegar liðið tekur slaginn í efstu deild aftur.

Breytingar:
Hópurinn er nánast sá sami og í fyrra en liðinu hefur borist gríðarlega öflug styrking í Evu Björk Davíðsdóttur sem kom til liðsins frá Stjörnunni. Eva er uppalin á nesinu og virkilega sterkt fyrir Gróttu að bæta henni við annars góðan hóp. Litlar breytingar hafa hinsvegar orðið á Gróttu liðinu undanfarin tímabil.

Lykilmenn:
Eva Björk Davíðsdóttir, Ída Margrét Stefánsdóttir og Andrea Gunnlaugsdóttir.

Fylgist með:
Elísabet Ásta Einarsdóttir er ung og efnileg stelpa sem uppalin er á nesinu. Hún er dóttir íþróttafréttamannsins Einars Arnar Jónssonar. Elísabet hefur verið að fá stærra hlutverk í liði Gróttu en hún er öflugur leikmaður einn á móti einum og verður spennandi að sjá hana í Olís deildinni.

Framtíðin:
Edda Sigurðardóttir er einn af burðarstólpum sterks þriðja flokks hjá Gróttu og hefur verið að fá tækifæri með meistaraflokknum. Hún hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands og spennandi að sjá hvort tækifærin verði fleiri með meistaraflokknum í ár.

Við hverju má búast:
Það má búast við því að Grótta verði í keppni við HK um síðasta lausa sætið í úrslitakeppninni. Liðið getur hæglega strít öllum liðum deildarinnar eins og það sýndi í bikarkeppninni í fyrra með því að vinna ÍBV á heimavelli. 

Sjá einnig:
Umfjöllun um karlalið FH
Umfjöllun um karlalið HK
Umfjöllun um kvennalið ÍBV
Umfjöllun um kvennalið Hauka
Umfjöllun um kvennalið Vals
Umfjöllun um kvennalið KA/Þórs
Umfjöllun um karlalið Selfoss
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top