
Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum. Olís-deild karla hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni. Í dag förum við yfir Þórsara frá Akureyri. Síðasta tímabil: Þjálfarinn: Breytingar: Fylgist með: Framtíðin: Sjá einnig:
Þór lék loksins í deild þeirra bestu á síðustu leiktíð í fyrra eftir óþarfa langa veru í Grill66-deildinni. Liðið var hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppnina í fyrra og nú á að gera betur. Þjálfarinn, Daniel Birkelund kom heldur seint inn fyrir síðustu leiktíð en gerði vel úr því sem hann hafði en illa gekk hjá Þórsurum að styrkja liðið fyrir síðustu leiktíð. Uppaldir Þórsarar voru í stóru hlutverki. Hópurinn var lítill og mátti út á bregða.
Norðmaðurinn, Daniel Birkelund er á leið inn í sitt annað tímabil með Þór en hann tók við liðinu síðasta sumar.
Fjórir Danir hafa verið fengnir til liðsins og þá er Jóhann Geir Sævarsson kominn aftur heim frá KA. Kári Kristján hefur lagt skóna á hilluna auk Arnórs Þorra og Halldórs Kristins Harðarsonar. Þórsarar reyndu að fá línumann í sumar en það hefur ekki gengið eftir.
Lykilmenn:
Oddur Grétarsson, Hafþór Vignisson, Brynjar Hólm Grétarsson
Danskir dagar í Þorpinu. Þórsarar hafa fengið til sín fjóra danska leikmenn sem munu setja svip sinn á leik liðsins. Það verður gaman og áhugavert að fylgjast með þróun þeirra í Þórs búningnum í vetur. Handkastið verður illa svikið ef ekki verður boðið upp á Smørrebrød, frikadeller og Carlsberg í Þorpinu í vetur.
Gunnar Bragi Reimarsson er fæddur árið 2010 og er leikstjórnandi. Hann lék mjög vel með yngri flokkum Þórs á síðustu leiktíð og er búinn að taka skrefið upp í meistaraflokkslið félagsins. Hann hefur tekið þátt í öllum leikjum Þórs á undirbúningstímabilinu og staðið sig gríðarlega vel.
Við hverju má búast:
Það getur brugðið til beggja átta hjá Þór í vetur. Við sáum hvernig fór hjá ÍR í fyrra á sínu öðru ári í Olís-deildinni. En ef Daniel Birkelund heldur áfram að vinna þá vinnu sem hann var að gera með liðið í fyrra og fær dönsku strákana til að bæta ofan á íslenska kjarnann þá á Þórsliðið að stefna á að komast í úrslitakeppnina. Liðið má þó alls ekki við meiðslum lykilmanna og árangurs Þórs gæti haldist í hendur við meiðslatíðni þeirra í vetur.
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.