Vindurinn í seglin og gullið í sjónmáli
Eyjólfur Garðarsson

Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum.

Olís-deild kvenna hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni.

Í dag förum við yfir ÍBV.

Síðasta tímabil:
ÍBV var það lið sem kom flestum á óvart með spilamennsku sinni og stigasöfnun á síðustu leiktíð. Liðið var lengi vel í harðri baráttu við Val um deildarmeistaratitlinn, liðið tapaði hinsegar óvænt gegn Grill66-deildarliði Gróttu í bikarnum. Eftir að hafa aðeins fengið 10 stig í deildinni árið áður þá fór liðið alla leið í úrslitaeinvígið í fyrra og endaði í 2.sæti Olís-deildarinnar. Nú á að byggja ofan á það í ár.

Þjálfarinn:
Magús Stefánsson er á leið inn í sitt annað tímabil með liðið. Gerði vel á sínu fyrsta tímabili en hvað gerir hann á sínu öðru ári.

Breytingar:
Það eru litlar breytingar á liði ÍBV frá síðustu leiktíð. Landsliðskonan, Andrea Jacobsen kemur heim með Þýskalandstitilinn á bakinu og leikur á ný í Olís-deildinni. Britney Cots yfirgaf hinsvegar Eyjuna og þá varð ÍBV fyrir mikilli blóðtöku þegar markvörður þeirra á síðasta tímabili, Amalie Fröland sleit krossband.

Lykilmenn:
Birna Berg Haraldsdóttir, Sandra Erlingsdóttir, Andrea Jacobsen

Fylgist með:
Ólöf Maren Bjarnadóttir fékk óvænt stórt verkefni í hendurnar fyrir úrslitaeinvígið gegn Val í fyrra þegar Amalie Fröland sleit krossband. Nú er hún með lyklana á markinu hjá ÍBV og ef félagið fær ekki til sín annan markvörð þá mun mikið mæða á Ólöfu í vetur.

Framtíðin:
Agnes Lilja Styrmisdóttir. Einn efnilegasti leikmaður landsins í dag, sterk bæði varnar og sóknarlega og fékk stórt hlutverk í liði ÍBV á síðustu leiktíð. Mínútum hennar gæti hinsvegar minnkað vegna komu Andreu Jacobsen en þetta tímabil gæti reynst dýrmætt fyrir Agnesu upp á framhaldið að vera með eins reynslu mikinn og gæða mikinn leikmann eins og Andreu með sér í liði.

Við hverju má búast:

ÍBV ætlar að stefna á alla þá titla sem í boði eru. Með leikmenn á borð við, Andreu Jacobsen, Söndru Erlingsdóttur og Birnu Berg Haraldsdóttur í svakalegu standi þá er erfitt að horfa framhjá því að ætla sér að stefna á þá titla sem í boði eru. Fyrir aftan þær eru síðan þræl efnilegar stelpur sem allar hafa verið í yngri landsliðum Íslands. ÍBV hefur verið í uppbyggingarfasa síðustu ár en nú er komið að því að sækja titil.

Sjá einnig:
Umfjöllun um kvennalið Hauka
Umfjöllun um kvennalið Vals
Umfjöllun um kvennalið KA/Þórs
Umfjöllun um karlalið Selfoss
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top