Titlaverksmiðjan fær nýtt hráefni
Egill Bjarni Friðjónsson

Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum.

Olís-deild kvenna hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni.

Í dag förum við yfir Íslands, bikar- og deildarmeistara Vals.

Síðasta tímabil:
Deildar- Íslands- og bikarmeistarar Vals mæta til leiks með mikið breytt lið frá síðustu leiktíð. Þrír leikmenn hafa yfirgefið liðið og farið í atvinnumennsku og þá eru lykilmenn að glíma við meiðsli. Liðið vann allt sem hægt var að vinna á síðustu leiktíð undir stjórn Antons Rúnarssonar sem tók við liðinu fyrir síðustu leiktíð.

Þjálfarinn:
Anton Rúnarsson fékk lyklana af liðinu sem Ágúst Þór Jóhannsson hafði átt síðustu ár. Sótti alla þá titla sem í boði voru á síðustu leiktíð en er nú á leið inn í sitt annað tímabil með liðið, án reynslu mikla leikmanna.

Breytingar:
Valur hefur fengið þær Britney Cots frá ÍBV og Mariu Weyhe frá Færeyjum. Valur hefur hinsvegar misst mikla reynslu úr liðinu. Lilja Ágústsdóttir, Thea Imani Sturludóttir og Lovísa Thompson fóru allar út í atvinnumennsku í sumar.

Lykilmenn:
Hafdís Renötudóttir, Katla María Magnúsdóttir, Britney Cots

Fylgist með:
Arna Karítas Eiríksdóttir hefur fengið að snerta á meistaraflokksbolta síðustu þrjú tímabil. Hún var í stóru hlutverki í sóknarleik liðsins á síðustu leiktíð og verður í enn stærra hlutverk í ár, eftir brotthvarf Lovísu Thompson. Lítil, snögg og með frábæra fintu sem getur gert varnarmönnum andstæðinganna lífið leitt og er farinn að bæta við skotógn að utan. Algjör lykill fyrir Valsliðið að Arna Karítas taki næsta skref í vetur.

Framtíðin:
Laufey Helga Óskarsdóttir - Fædd árið 2009 og yngri systir bræðranna Benedikts Gunnars Óskarssonar og Arnórs Snæs Óskarssonar. Fékk stærra og stærra hlutverk þegar leið á síðustu leiktíð og var í stóru hlutverki í úrslitaeinvíginu gegn ÍBV. Klárlega einn efnilegasti leikmaður okkar í dag. Það verður spurning hvort hún spili yfir eða undir 70 leiki í vetur eins og á síðasta tímabili, er hún var í stóru hlutverki með Val, Val 2 og í 3.flokki. Var meðal annars þriðji markahæsti leikmaður Grill66-deildarinnar í fyrra.


Við hverju má búast:

Þegar kvennalið Vals er annarsvegar er ekki gert ráð fyrir neinu öðru en toppbarátta og titlasöfnun. Þrátt fyrir að reynslu miklir leikmenn hafi sagt skilið við liðið þá er liðið gríðarlega vel mannað. Með Hafdísi Renötudóttur í markinu þá ertu alltaf líkleg til að vinna leiki. Liðið gerði vel á markaðnum með því að fá Britney Cots og Kötlu Maríu sem gefur liðinu helling bæði innan og utan vallar. Valur verður í baráttu um alla titla en sæki liðið alla titlana annað árið í röð, þá þarf að rannsaka Anton Rúnarsson.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top