Nú duga engin hænuskref
Egill Bjarni Friðjónsson

Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum.

Olís-deild kvenna hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni.

Í dag förum við yfir kvennalið Hauka.

Síðasta tímabil:
Eftir að hafa sótt langþráðan titil á þar síðasta tímabili var mikil eftirvænting í Hafnarfirðinum fyrir síðustu leiktíð. Haukar styrktu sig vel fyrir tímabilið og spáðu því margir að liðið gæti keppt við Hauka um alla titla tímabilsins. Annað kom hinsvegar á daginn. Liði var aldrei nálægt toppbaráttu í deildinni, tapaði í úrslitaleik gegn Val í bikarkeppninni og tapaði síðan í undanúrslitum Íslandsmótsins gegn ÍBV. Niðurstaða síðasta tímabil voru vonbrigði í Hafnarfirðinum og nú þarf að rétta skútuna við.

Þjálfarinn:
Stefán Arnarson er að fara inn í sitt fjórða tímabil með liðið. Díana Guðjónsdóttir er horfin af braut og Rut Arnfjörð Jónsdóttir er orðin aðstoðarþjálfari liðsins.

Breytingar:
Annað sumarið í röð hafa Haukar bætt við sig öflugum leikmönnum og styrkt ákveðnar stöður á vellinum. Leikmannahópurinn er ekki stór en hann er með mikla reynslu og margir leikmenn sem gera tilkall í að vera í byrjunarliðinu. Eftir að Rut Jónsdóttir varð ólétt í upphafi síðasta tímabils lék liðið með rétthendan leikmann í hægri skyttunni í fyrra. Nú verður breyting á og hefur liðið sótt tvo örvhenta leikmenn heim frá Noregi og Svíþjóð.

Lykilmenn:
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Berta Rut Harðardótir, Sara Sif Helgadóttir

Fylgist með:
Hin örvhenta, Þóra Björg Stefánsdóttir er uppalin í Vestmannaeyjum en hefur leikið í Noregi undanfarin ár. Það kom mörgum á óvart þegar hún var tilkynnt sem nýr leikmaður Hauka og hún gæti gefið Hauka liðinu auka breidd í leik liðsins.

Framtíðin:
Roksana Jaros er hörku línumaður í U18 ára landsliði Íslands, sterkur varnarmaður en bíður enn eftir að fá alvöru eða jafnvel einhver tækifæri með Haukum í Olís-deildinni. Nú hlýtur að vera komið að því að unglingalandsliðsleikmaðurinn fái að spreyta sig hjá uppeldisfélaginu og láti til sín taka bæði varnar- og sóknarlega.

Við hverju má búast:
Eftir að hafa tekið nokkur hænuskref fram á við síðustu ár var síðasta tímabil vonbrigði. Haukar er eitt af fáum liðum deildarinnar sem hafa styrkt sig frá síðustu leiktíð. Haukar hljóta að stefna á alla þá titla sem í boði eru og það er ekkert annað í kortunum en að það gerist. Það er mikil pressa á liðinu fyrir komandi tímabil eftir að hafa fallið á prófinu á síðustu leiktíð.

Sjá einnig:
Umfjöllun um kvennalið Vals
Umfjöllun um kvennalið KA/Þórs
Umfjöllun um karlalið Selfoss
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top