Bjarki Már Elísson fékk draumabyrjun á ferlinum hjá franska stórliðinu PSG um helgina þegar liðið varð meistari meistaranna í Frakklandi með naumum 21-20 sigri á Montpellier. Bjarki Már, sem gekk í raðir PSG frá Veszprém í sumar, var markahæstur Parísarliðsins í leiknum með fjögur mörk í sínum fyrsta keppnisleik fyrir félagið. PSG var fjórum mörkum undir í hálfleik, 8-12, en sneri leiknum sér í hag eftir hlé og tryggði sér titilinn. Það er þó ekki aðeins frammistaða Bjarka sem hefur vakið athygli eftir leikinn. Myndskeið af óvenjulegu atviki í leiknum hefur farið í dreifingu á samfélagsmiðlinum X. Atvikið má sjá hér neðst í fréttinni. Snemma í síðari hálfleik skoraði Bjarki eftir hraðaupphlaup en lenti þá í samstuði við Rémi Desbonnet, markvörð Montpellier. Þeir fóru þá saman í jörðina áður en samherji Desbonnets kom aðvífandi og ýtti Bjarka með þeim afleiðingum að Íslendingurinn hafnaði harkalega í stönginni og síðan í gólfinu. Bjarki lét atvikið ekki stöðva sig og hélt áfram leik. Hann skoraði fjögur mörk í eins marks sigri PSG og fagnaði þar með sínum fyrsta titli með franska stórliðinu. We Francji to się przynajmniej coś dzieje.
Mała wymiana zdań pomiędzy Elíssonem a Desbonnetem z użyciem rąk. Podchodzi Monte pcha 🇮🇸 na słupek 🔥🔥🔥 pic.twitter.com/id5QKAhAvv

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.